Ormurinn
Uppbygging á Straumi – nýjum miðbæ á Egilsstöðum er hafin. Nýi miðbærinn byggir á framsækinni framtíðarsýn og stefnu um virðingu fyrir umhverfinu. Skipulagið gerir ráð fyrir fjölgun íbúða í bland við atvinnuhúsnæði til að skapa aðstöðu fyrir verslun og þjónustu sem laðar að íbúa og ferðamenn.
Markmið skipulagsins er að skapa vandaða miðbæjarbyggð og leggja grunn að fögru og vel byggðu umhverfi í góðum tengslum við útivistarsvæði. Byggðin hefur verið þétt til muna og hlutfall íbúða aukið til þess að ná betur markmiðum um blandaða byggð í anda vistvæns skipulags.
Lykilþáttur í skipulagstillögunni er göngu- og verslunargata sunnan Fagradalsbrautar sem hefur fengið nafnið Ormurinn. Nafnið vísar til þjóðsögunnar um Lagarfljótsorminn. Með fögru umhverfi, góðri aðkomu og miklu framboði af þjónustu og afþreyingu er kominn grundvöllur fyrir öflugt mannlíf.
Til að mæta ólíkum þörfum íbúa og gesta er Orminum skipt niður í þrjú minni dvalarsvæði; leiksvæði, torg og samkomusvæði sem virka eins og upphaf, miðja og endir.
Sunnan við torgið er gert ráð fyrir samkomusvæði sem hefur fjölbreytan möguleika fyrir ýmsa viðburði sem stuðlar að félagslegu heilbrigði svo sem tónleikum o.fl.
Fyrir miðju verður torg sem gert verður að aðlaðandi bæjartorgi með bekkjum og götugögnum sem styður blómlega verslun og þjónustu. Torgið nýtist fyrir mismunandi viðburði eins og ýmis hátíðarhöld, götu- og jólamarkað.
Austan megin við Orminn er auk þess gert ráð fyrir veitingaþjónustu með möguleika á útisvæði þar sem það liggur vel við sólu.
Vestan við samkomusvæðið verður leiksvæði rammað inn með gróðri, gróðurmön og bekkjum.
Samkomusvæðið verður mótað í hring þar sem bekkir, gróður og útisvið verða til staðar til að halda fjölbreyttar samkomur. Almenningsgarðurinn nýtist bæði fyrir leik og útivist
Mikilvægt er að móta rýmið í heild sinni með fjölbreyttum gróðri til að mynda skjólgott og aðlaðandi svæði sem gott er að setjast niður, staldra við og stuðla að samskiptum við annað fólk. Frá göngugötunni verður gengið inn í verslanir en bílastæði verða baka til. Umhverfið við og í kringum göngugötuna verður gert aðlaðandi með gróðri og fallegum setsvæðum.
Vistvænt skipulag fyrir gangandi, hjólandi og njótandi.
Ormurinn
Lykilþáttur í skipulagstillögunni er göngu- og verslunargata sem hefur fengið nafnið Ormurinn. Með fögru umhverfi, góðri aðkomu og miklu framboði af þjónustu og afþreyingu er kominn grundvöllur fyrir öflugt mannlíf.
Umhverfið
Egilsstaðir er höfuðstaður Austurlands og einn mikilvægasti viðkomustaður landsins. Lega bæjarins er við annasömustu vegamót fjórðungsins. Bærinn er vel tengdur fyrir samgöngur, á landi lofti og legi.
Tækifærin
Svæðið í heild hefur uppá fjölbreytta starfsemi og afþreyingu að bjóða. Ferðþjónusta hefur vaxið gríðarlega, mikil sóknarfæri eru í matvælaframleiðslu auk þess sem Egilsstaðir eru þjónustumiðstöð Austurlands.