Sveitarfélagið Múlaþing​

Lyngási 12, 700 Egilsstaðir | Kt: 660220-1350 |
Sími: 4 700 700 | mulathing@mulathing.is

Straumur

Uppbygging á nýjum miðbæ á Egilsstöðum er hafin.
Nýi miðbærinn byggir á framsækinni framtíðarsýn og stefnu um virðingu fyrir umhverfinu. Skipulagið gerir ráð fyrir fjölgun íbúða í bland við atvinnuhúsnæði til að skapa aðstöðu fyrir verslun og þjónustu sem laðar að íbúa og ferðamenn.

Markmið skipulagsins er að skapa vandaða miðbæjarbyggð og
leggja grunn að fögru og vel byggðu umhverfi í góðum tengslum
við útivistarsvæði. Byggðin hefur verið þétt til muna og hlutfall
íbúða aukið til þess að ná betur markmiðum um blandaða byggð
í anda vistvæns skipulags.

Með byggingu 160 nýrra íbúða og aukinna verslunarrýma verður miðbærinn elfdur og sú umgjörð sköpuð sem þarf til að laða að fleiri íbúa, fyrirtæki og gesti. Veðurfar þykir almennt nokkuð gott á Egilsstöðum og svæðið einstaklega gróðursælt.

Um að ræða einstakt tækifæri fyrir kröftuga uppbyggingu bæði í íbúabyggð og verslunarþjónustu. Ný göngugata, sem hefur fengið nafnið Ormurinn, bæjartorg og samkomusvæði styrkja öflugt mannlíf og gera svæðið að eftirsóttum stað til að búa á.

play-icon

Skipulag

Skipulagið samanstendur af fjölbreyttu íbúðar-, verslunar- og þjónustuhúsnæði til að skapa lifandi götumynd. Gróðursæl útivistarsvæði og tengingin við ferðamenn; innlenda sem erlenda, farþega sem ferðast í gegnum alþjóðaflugvöllinn á Egilsstöðum og með Norrænu, opna einnig fyrir gríðarstór tækifæri í ferðamennsku. Með fögru umhverfi, góðri aðkomu og miklu framboði af þjónustu og afþreyingu er kominn grundvöllur fyrir öflugt mannlíf.

Reitur 1

Tvær lóðir með samtals fjórum fjölbýlishúsum.

Reitur 2

Fjórar lóðir með samtals fjórum byggingum með blöndu íbúða og verslunar- og þjónusturýma.

Reitur 3

Tvær lóðir með samtals tveimur byggingum með blöndu íbúða og verslunar- og þjónusturýma.

Reitur 4

Tvær lóðir með samtals tveimur byggingum, annarri með blöndu íbúða og verslunarþjónusturýma og hinni fyrir verslun og þjónustu.

51.526 m²

nýbyggingar

160

nýjar íbúðir

Einstök

veðursæld

Stór tækifæri ​

í ferðamennsku​

Alþjóðlegur

flugvöllur

Nálægð

við Norrænu​

Ormurinn

Lykilþáttur í skipulagstillögunni er göngu- og verslunargata sem hefur fengið nafnið Ormurinn. Með fögru umhverfi, góðri aðkomu og miklu framboði af þjónustu og afþreyingu er kominn grundvöllur fyrir öflugt mannlíf.

Umhverfið

Egilsstaðir er höfuðstaður Austurlands og einn mikilvægasti viðkomustaður landsins. Lega bæjarins er við annasömustu vegamót fjórðungsins. Bærinn er vel tengdur fyrir samgöngur, á landi lofti og legi.

Tækifærin

Svæðið í heild hefur uppá fjölbreytta starfsemi og afþreyingu að bjóða. Ferðþjónusta hefur vaxið gríðarlega, mikil sóknarfæri eru í matvælaframleiðslu auk þess sem Egilsstaðir eru þjónustumiðstöð Austurlands.